Kennararáð 2020-2024
Mennta- og barnamálaráðherra skipar kennararáð, sbr. ákvæði 7. gr. laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Hlutverk kennararáðs er m.a. að:
- veita ráðherra ráðgjöf og leiðbeiningar um þróun hæfniramma með því að gera tillögu um innihald og endurskoðun reglugerðar um hæfniramma fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda,
- veita leiðbeiningar og ráðgjöf um útfærslu hæfniramma á grundvelli þessa kafla og reglugerðar skv. 8. gr.,
- veita ráðgjöf um starfsþróun kennara og skólastjórnenda og notkun hæfniramma við útfærslu og framkvæmd hennar,
- fylgjast með alþjóðlegri þróun og áherslum í menntavísindum og nýta við ráðgjöf um kennaramenntun og starfsþróun,
- veita leiðsögn um mat á sérhæfingu kennara við ráðningu,
- efla vitund um mikilvægi kennarastarfsins í samfélaginu.Skipunartímabil er frá 15. júní 2020 til 14. júní 2024.
Kennararáð er þannig skipað:
- Birgir Urbancic Ásgeirsson, formaður, án tilnefningar.
Varamaður: Hrafnkell Tumi Kolbeinsson. - Sonja Dögg Pálsdóttir, varaformaður, án tilnefningar.
Varamaður: Sigríður Lára Ásbergsdóttir. - Guðmundur Engilbertsson, samkvæmt tilnefningu Háskólans á Akureyri.
Varamaður: Kristín Dýrfjörð. - Helga Kristín Kolbeins, samkvæmt tilnefningu Skólameistarafélags Íslands.
Varamaður: Steinunn Inga Óttarsdóttir. - Svandís Ingimundardóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Varamaður: Svandís Svala Kristín Hreinsdóttir. - Ingimar Ólafsson Waage, samkvæmt tilnefningu af Listaháskóla Íslands.
Varamaður: Gunndís Ýr Finnbogadóttir. - Ragnar Friðrik Ólafsson, samkvæmt tilnefningu Menntamálastofnunar.
Varamaður: Freyja Birgisdóttir. - Kristín Jónsdóttir, samkvæmt tilnefningu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.
Varamaður: Rannveig Björk Þorkelsdóttir. - Jónína Hauksdóttir, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands.
Varamaður: Haraldur Freyr Gíslason. - Guðjón Hreinn Hauksson, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands.
Varamaður: Sigrún Grendal Jóhannesdóttir. - Mjöll Matthíasdóttir, samkvæmt tilnefningu Kennarasambands Íslands.
Varamaður: Þorsteinn Sæberg.
Skipunartímabil er frá 15. júní 2020 til 14. júní 2024.